Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Fyrning á aflaheimildum, og afturhvarf frá Landnámi !

Nú þegar Samfylkingin hefur boðað endurheimtur á framsalsheimildum sem þeirra fólk og forkólfar komu á á sínum tíma. Eru allir sótraftar á sjó dregnir af Landnámsmönnunum í LÍÚ. Jú "LANDNÁMSMÖNNUNUM" vegna þess að fyrir nokkrum árum, kannski 2-5 árum síðan var sögð frétt frá lokum aðalfundar LÍÚ. Þar var sagt frá því að þekktur Útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, hafi úr ræðustól, líkt yfirráðarétti eigenda Íslensks sjávarfangs við nútíma landnám. Eflaust var hann góðglaður, á góðra vina fundi. Og uppskorið ákaft lófaklapp og faðmlög frá jafningjum og vopnabræðrum. Þegar ég las þetta á sínum tíma, sá ég fyrir mér hvílík fyrring var í gangi á Landinu mínu. Mér var hugsað til Landnáms á Íslandi, en fann engar hliðstæður, þar sem enginn átti að hafa verið til staðar við það landnám. Landið hafi ekki beinlínis verið tekið frá neinum. En mér varð líka hugsað til annars Landnáms, sem ég kynntist fyrir 13 árum á óhugnanlega táknrænan hátt. Mér fannst þá að það landnám ætti betur við ásetning og hugarþel ræðumannsins en það Íslenska.

Árið 1996 var ég á siglingu fyrir utan Namibíu, á Namibísku Varðskipi. Ég hafði með höndum þjálfun ungra Stýrimannsefna og voru tvö þeirra á vakt með mér þennan dag. Við sigldum fram hjá stað sem heitir "Diaz Point" Það voru einungis nokkrir mánuðir frá því Namibía hlaut sjálfstæði og samtímis afnám Apartheit. Mig langaði að vita hvað byggi í hugum þessa unga fólks, sem var framtíð þessa unga lands. Spurði þau því, af hverju er Portúgalskt nafn á kennileitum á landinu ykkar. Börnin voru rétt um tvítugt, en bæði stúdentar úr stærðfræðideild og afburða námsmenn. Svarinu sem ég fékk, mun ég aldrei gleyma.

Pilturinn byrjaði, en hann átti erfitt um mál fyrir hlátursrokum og varð að útskýra fyrir mér með hléum. Jú "Batrholomew Diaz" var Porúgalskur skipstjóri sem tók land hér á "Diaz Point" fyrir ca. 500 árum. Hann var svo vitlaus að hann hélt að hann hafi fundið land sem hafi verið TÝNT. Týnt fyrir Guði og mönnum. Því reysti hann hér minnisvarða og færði þetta týnda land Guði og Portúgölskum konungi að gjöf. Hann fattaði ekki að hér bjuggu milljónir manns og höfðu gert í milljón ár. Landið okkar var aldrei týnt fyrir þeim.

Stúlkan bætti við að þessi kjáni hefði líka tekið land þúsund mílum norðar, við Kongófljót, þar sem nú er Angóla. Þar gerði hann það sama, fann týnt land. En svo jukust hlátrasköllin, hann hefði átt að ferðast 100 kílómetra inn í landið. Því þar hefði hann komið á stað sem vísindamenn væru í dag að sanna að væri upphaf mannkynsins. Fæðingarstaður EVU. En þessi kjáni spígsporaði um og hélt að hann hefði fundið eitthvað sem væri týnt Guði og mönnum.

Eftirleikinn þekkja allir, höfðingjar og stjórnendur þessara landa voru hvattir til og neyddir til að selja samlanda sína í ánauð af eftirmönnum Diaz. Það þarf enginn að efast um að ef einhvers mótþróa hafi gætt, hafi neytendur þess,þá nútíma þrælahalds,beitt álíka rökum fyrir framhaldinu.Og talsmenn LÍÚ frá Vestmannaeyjum gera í dag gegn afnámi á þeirra hagsmunum. Það myndi þýða endalok hagvaxtar, gjaldþrot banka og hungursneyð þjóðar þeirra. Þeir höfðu reyndar vopnavald í bakhöndinni ef rökin þrutu.

Er það ekki ánauð, ef ungt og hæfileikaríkt fólk verður að hrökklast frá heimalandi sínu til að geta séð sér og sínum farborða. Alveg eins og liðinna alda þrælahald var hagstjórnartæki, þeirra sem eignuðu sér allar þær auðlindir sem hægt var að láta greipar sópa um. Nú þegar ungar fjölskydur munu hrökklast úr landi af ánauð. Reyndar ekki sömu tegund af ánauð og Vestmannaeyingurinn hún Tyrkja Gudda, en ánauð samt. Og hversu margar stafsævir, hversu margra Tyrkja Gudda þarf til að endurgreiða og endurreisa vesældina sem m.a. Vestmannaeyja Landnámsklíkan á stóran þátt í að hafa leitt yfir okkur. Ungu Namibísku Stýrimannsefnin voru öfundsverð. Þau áttu feður og afa sem létu hendur standa fram úr ermum. Þeir fóru enga tuttugu ára fyrningarleið. Þeir endurheimtu sínar eignir með vopnavaldi og fórnum, afkomendum sínum til mikils sóma.

Í umræum dagsins um fyrningu ætti að hafa í huga að fiskveiðiheimildir hafa verið fyrndar (afskrifaðar) skattalega í mörg ár. Þetta er óskiljanlegt, því hvernig er hægt að afskrifa það sem ekki eyðist. Er t.d. hægt að afskrifa lóðir?Upplýsingar um samanlagðar afskriftir fjárfestinga í aflaheimildum hlýtur að vera hægt að nálgast hjá Skattyfirvöldum. Það kæmi mér ekki á óvart að allar veiðiheimildir á Íslandsmiðum hafi verið afskrifaðar bæði einu sinni og tvisvar á þeim tíma sem þetta hefur viðgengist. Hitt er öllu líklegra að verðmætin hafi stöðugt verið uppfærð, til að geta haldið topp veðsetningu fyrir lánum til nota í öðru braski.

Ég skora hér með á grúskara sem hafa kunnáttu og áhuga á að grafa upp úr annað hvort Morgunblaðinu eða fréttablaðinu. Grein sem skrifuð var í tilefni loka aðalfundar LÍÚ. Man ekki hvað það er langt síðan, kannski 2 ár kannski allt að 5 ár. Þar var vitnað í ummælin um Nútíma landnám frá ræðustól, við mikið lófaklapp fundarmanna. Ræðumaður er þekktur Útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. Nú er samstarfsmaður hans að leggja á borð skýrslu endurskoðunarfyrirtækis, sem sér fyrir endalok Íslensku þjóðarinnar ef Landnáminu linnir.

 

 

 

 


Gamli hrokinn gleymist ei

Það var hálf sorglegt að sjá Davíð í kvöld. Ekki það að hann færi halloka út úr viðureigninni, heldur stílinn sem hann notaði. Það er hægt að nýta sér það að hafa verið forsætisráðherra lengst af öllum og óneitanlega gefur það "pondus". Það er ekki fyrir hvaða spyril sem er að fást við slíkan klækjaref.

En það er margt sem hægt er að færa Davíð til tekna, þó að óneitanlega séu líka gjaldaliðir.

Ég man vel þegar fyrsta opinbera hneykslan á ofurlaunum varð til þess að Davíð tók út sína sparipeninga úr þá Búnaðarbankanum.

Ég man og trúi því 100% að Davíð hafi verið boðnar mútur, til að setja kíkirinn fyrir blinda augað í fjármálasukkinu, eins og margir hafa gert.

Ég las og trúði því að Davíð hafi verið veikur síðusta hluta stjórnarsetu sinnar sem Utanríkisráðherra. Meira að segja svo veikur að hann muni varla eftir því að hafa verið Utanríkisráðherra.

Ég trúi því líka að Davíð hafi varað ríkisstjórnina við yfirvofandi hamförum, frekar oftar en sjaldnar.

Ég trúi því að Davíð hafi haft ímugust á tveimur valdablokkum í íslensku viðskiftalífi, þ.e. S-hóp og Baugs-hóp. Enda hefur sýnt sig hvaða karaktera þessar blokkir hafa að geyma.

Ég trúi því að Davíð hafi átt undirlag og einhvern þátt í Baugsmálinu. Sem verður kannski stærsti skammarblettur á réttarfari í siðuðum löndum. Þar sem sekir menn sleppa við réttláta dóma í krafti málaþvælings með illa fengnum peningum.

Það sem ég hef hér talið færist á tekjuhlið Davíðs í mínu bókhaldi. Sem gerir niðurstöðuna einfalda. Maðurinn er gegnheiðarlegur, og vill bara vel.

Þegar kemur að gjaldahliðinni þá vandast málið. Hverjum er þetta allt að kenna.

Fyrir utan úthlutun án endurgjalds, á fiskveiðiheimildum á Íslandsmiðum. Sem vinstri menn bera ábyrgð á hefur Davíð verið uppáskrifandi arkitekt að þjóðfélaginu okkar sem er nú farið á hausinn.

Davíð ber ábyrgð á að hafa hleypt umboðslausum Framsóknarmönnum, með lágmark atkvæða á bak við sig, inn í mest áriðandi einkavæðingu sem þjóðfélagið hefur framkvæmt.

Davíð ber ábyrgð á að hafa lagt niður þjóðhagsstofnun, og þar með tæki þjóðarinnar til að fylgjast með og varðveita eigin hag.

Davíð ber ábyrgð á að stuðla að því að fjármálatilraunir manna eins og Hannesar Hólmsteins séu krítíklaust prófaðar á smáþjóð. Sem má næstum líkja við læknisfræðitilraunum á föngum í búðum Nasista. Að minsta kosti að því leiti að fórnarlömbin voru nánast varnarlaus.

Davíð hefur enn ekki skilgreint hina einstöku tilviljun að einmitt Kjartan Gunnarsson og Finnur Ingólfsson, bara alveg óvart urðu stórir eigendur að bönkunum sem þeir einkavæddu fyrir hans hönd og þjóðarinnar.

Davíð ber einnig ábyrgð á að orðið "frjálshyggja" eins og venjulegir borgaralegir kjósendur litu á sem sjálfsagða aðferð til að reisa samfélag á. Er orðið baneitrað og verður í langan tíma. Þetta atriði er kannski það versta við allt saman, og brautar gengi fyrir kommúnisma.

Þegar reikningskilin eru gerð upp, jú jú, góðir og slæmir. Heiðarleiki og trúfesta, en hvað verður framhaldið? Getur þú og vilt þú bæta úr þessu?

 


Dæmdur ohæfur til ad stjorna fyrirtækjum, en radinn af rikinu.

Er thetta djok ?? Fekk ekki madurinn skilordsbundinn dom i Hæstaretti. Og thar med dæmdur fra stjornarsetu i hlutafeløgum medan skilordid stendur. Er thetta ekki oløglegt ? Er Rikisvaldid i gegnum Rikisbanka ad hunsa dom Hæstaretts ? Vilja ekki einhverjir vænir løgmenn kæra thetta til Rikisløgreglustjora, hann mun eflaust fylgja malinu eftir.

Elsku kæri heilbrigisráðherra

Hefur þú ekki heyrt söguna af litla Skotastráknum, sem kom móður og másandi, yfir sig stoltur, heim til pabba síns. Pabbi pabbi ég sparaði 5 kall, ég hljóp á eftir strætó alla leiðina heim úr skólanum. Pabbinn svaraði "Ansans kjáninn þinn, þú hefðir átt að hlaupa á eftir leigubíl og spara 50 kall.

En heilbrigðisráðherra er til vorkunnar að hann er líka ungur. En þeir sem eru eldri vita að best rekna Heilbrigðisstofnun á Ísland EVER var St.Jósefsspítali, Landakot og Hafnarfjörður. Svo ef þú vilt spara 50 kall í staðinn fyrir 5 kall, hafðu samband við St. Jósefsregluna eða einhvarja tilsvarandi reglu og biddu um rekstur á allri Heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Alla stjórnun frá Heilbrigðisráðherra og niður úr.

Þar var sko sparað í stjórnun og yfirbyggingu, en læknar voru samt svo hátt launaðir að færri komust að en vildu.


Er verið að fela Landráð af óvitaskap.

Það er óhugnanlegur grunur sem er byrjaður að festa rætur í brjósti mínu þegar ég ryfja upp atburði og orsakasamhengi. Nú þegar byrjað er að undirbúa almenningsálitið undir það, að skattgreiðendur kokgleypi að greiða skuldir sjávarútvegs. Snemma í September 2005 var Guðmundur heitinn Kjærnested skipherra borinn til grafar. Þegar síðustu minningargreinarnar eftir hann höfðu verið birtar í Morgunblaðinu, birtist pínulítil grein eftir þáverandi Sjávarútvegsráðherra Árna Mathiesen.

Þar lýsti Sjávarútvegsráðherra yfir þörf til að aðlaga Stjórnarskrá Islands, að einkaeign á fiskveiðiheimildum. Og boðaði flutning á slíkri tillögu. Ég hef ekki heyrt meira um málið eftir það. En tímasetningin á birtingunni fannst mér ógeðsleg. Nánast eins og beðið hefði verið eftir fráfalli þess manns,sem sótti þessa auðlind í greipar útlendinga, framar öðrum.

Þótt svo að þetta hafi farist fyrir hjá Sjálfstæðismönnum, eða ekki verið framkvæmanlegt. Voru þeir þá byrjaðir að gera sér grein fyrir að eignarhaldið á auðlindinni var Stjórnarskrárbundið og þar af leiðandi voru veðin ekki framsalshæf erlendum lánveitendum.

Ef svo er sem ég og margir fleiri telja, standa stjórnvöld frammi fyrir slæmum málum. Þau hafa ekki bara látið þetta viðgangast, heldur einnig hvatt til þess og stutt við það í hvívetna.

En nú er augnablik sannleikans runnið upp. Kröfuhafar Íslensku bankanna banka á dyrnar og krefjast síns réttar, með því að ganga að veðunum að siðaðra manna hætti.

Ef slegið er upp í Wikipedia á "Guðmund Kjærnested" má m.a. lesa eftirfarandi.

"He is regarded as a National hero and a True Patriot in Iceland"

Flestir vita fyrir hvað hann fær þessa umsögn. Myndu stjórnvöld síðustu ára geta vænst þessarar umsagnar, eftir að þjóðin verður að kaupa aftur það sem menn eins og Guðmundur Kjærnested dró í þjóðarbúið.

Eða munu þeir dæmast til hins gagnstæða við "National hero og true Patriot"


Einar K. og sannleikurinn um skuldir sjávarútvegs.

Nú er hafinn lífróður í undirróðri til þjóðarinnar um ósanngirni þess að sjávarútvegurinn standi við skuldbindingar sínar gagnvart sínum skuldunautum. Það ólíklega hefur gerst að skuldir sjávarútvegs hafa færst á hendur skuldareigenda gjaldþrota Íslensku bankanna, sem eru erlendir bankar og fjármálastofnanir.

Snemma í Apríl síðastliðnum, hélt hugmyndafræðingur og bankaráðsmaður í Seðlabankanum í för til Wall Street til að róa lánveitendur gagnvart veðhæfi Íslensku bankanna. Þar lét Hannes Hólmsteinn eftir sér hafa að lánveitendur þyrftu ekki að hafa áhyggjur af skuldum Íslensku bankanna þar sem þeir hefðu veð í Íslensku sjávarútvegsauðlindinni. Til viðbótar sagði hann að sterkasta frjálsa lífeyrissjóðakerfi í heimi stæði heilshugar bak við Íslensku bankana.

Í sömu lofgrein bætti Hannes útfyllandi við að einmitt veð og framsalshæfi sjávarútvegsauðlindarinnar væri uppskriftin og bakhjarlinn á bak við Íslenska efnahagsundrið.

Nokkrum dögum síðar hélt Sjávarútvegs og Landbúnaðarráðherra opinn fund um málefni ráðuneytis síns í Valhöll. Þar var hann í tvígang spurður að því hvort sjávarútvegsauðlindin væri veðsett í erlendum bönkum. Hann neitaði því í bæði skiptin og vildi enga ábyrgð bera á orðum Hannesar, sem höfðu verið birt í pínulítilli grein í Fréttablaðinu 2 dögum áður.

En nú er komið að Árna Johnsen, hann hefur ekki verið notaður sem talsmaður Sjálfstæðisflokksins í mikilvægum málum upp á síðkastið. En því ber ekki að neita að hann hefur hreint sakavottorð, þar sem hann hefur lokið afplánun. Þannig að trúverðugleiki hans í mikilvægum málum sem þessu er meiri en Sjávarútvegsráðherra. Sem hvorki getur kallast sanninda né ósannindamaður, þar sem að til þess, þurfa menn að vera menn til að byrja með.


Um bloggið

Jens Guðmundur Jensson

Höfundur

Jens Guðmundur Jensson
Jens Guðmundur Jensson
Sæfari

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband