Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Einelti, verður barnaníð næsta vopnið í varnarbaráttunni.

Til hamingju Ísland, ég fæddist hér. Já Íslenskt tungumál er til margra hluta nytsamlegt. Síðustu notkunarmöguleikarnir, birtast í viðtali við Jóhannes Jónsson kenndan við Bónus í DV. Veslings gamli maðurinn er eineltur af miklum meirihluta þjóðarinnar og er að missa heilsuna af þeim sökum. Væri ekki ráð að safna saman liði´bestu og ósvífnustu lagatækna landsins og reka af sér óværuna, eins og hverja aðra aflúsun. Þessa tækni þekkir fjölskyldufaðirinn ágætlega, en hann veit væntanlega líka hvað hún kostar. "En bondegaard eller so" en það gengur bara vel þegar maður á banka og gengur að innistæðum og erlendu lánsfé eins og hverju öðru rekstrarkapitali. Því auðvitað er það hluti af öllum rekstri á heimsvísu að hrekja frá sér allar ásakanir um ólöglega viðskiftahætti með þeim meðölum sem þarf. Verst Jóhannes að þú sért búinn að týna lyklunum að bönkunum, nema þú sért kannski ekki búinn að því? Kannski kemur Finnur Arion þér til hjálpar og fjármagnar stefnur á hendur Íslensku þjóðinni. Og þar sem þér er svo tíðrætt um hvað þú þarft að gera til að halda uppi vörnum fyrir "fjölskylduna" hlýtur það að eiga við börn. Og ef orðið einelti á við þitt forhold til Íslensku þjóðarinnar, með rétti. Eru þá ekki börnin þín fórnarlömb barnaníðs. Ég vil benda þér á "Barnastofu" þar sem önnur Íslensk börn, sem eiga við slík vandamál að stríða fá hjálp og liðsinni. Annars óska ég þér góðs gengis, helst sem lengst fjarri föðurlandinu og persónulega vildi ég óska þess að þú yrðir ekki, ásamt fjölskyldu þinni, jarðsettur á Íslandi. 

Hannes Hólmsteinn og Arion

Mikið vildi ég að Hannes Hólmsteinn og ég værum samherjar. Annar eins yndislegur penni og maðurinn getur verið. Þetta meina ég af fyllstu alvöru. Þó svo að ég saki hann um að hafa stolið frá mér allri minni réttsýni og skoðunum um lífið og tilveruna. Skilið mig eftir án þess að geta tjáð mína skoðun í stjórnmálum, alla vega í kjörklefanum. Þó vildi ég óska þess að við værum samherjar. Ég myndi vilja deila upp embætti sérstaks saksóknara í tvennt. Mál sem innihalda "hugtökin" Sjálfstæðisflokkur, Frjálshyggja, Davíð Oddson og Kjartan Gunnarsson væri haldið til hliðar. Önnur mál er varða réttlæti yrðu fengin Hannesi Hólmsteini, sem saksóknara, dómara og böðli. Þetta meina ég af hjartans einlægni. Það er hryllileg tilhugsun að jafn hæfileikaríkur maður og Hannes Hólmsteinn geti ekki haft áhrif á gang mála í okkar spillta umhverfi, af réttlæti og heiðarleika. En það er eins og, ef, hugtökin fjögur, eru til staðar fari öll dómgreind Hannesar í frí.

Elsku Hannes, haltu áfram að gera það sem þú gerir vel.

 


Hefði Hannes Hólmsteinn, verið stýrimaður hjá Davíð Oddsyni á Titanic hefðu báðir komist af og getað komið allri sökinni á ísjakann.

Nú þegar nálgast, "sannhedens öjeblik" Rannsóknarnefnd alþingis og Sérastakur saksóknari eru að finna sporin. Er allt sett í fullan gír í áróðrsstríðinu. Núna er Egill Helgason orðinn þjóðfélagsóvinur númer 1. Hann hefur sagt þetta á einhverjum degi og hitt á öðrum. En alla þessa daga sem Egill sagði eitthvað var hann ekki ábyrgðarmaður þjóðfélagsins, þannig að ekki er hægt að draga hann til ábyrgðar fyrir hvernig fór. Það sama er ekki hægt að segja um Davíð Oddson. Seðlabankastjóri getur ekki gefið yfirlýsingar í fjölmiðlum, þar sem hann gagnrýnir kjörin stjórnvöld. Hann getur bara mótmælt framvindu mála við stjórnvöld. Og ef þau sömu stjórnvöld ekki fara að ráðum hans getur hann sagt af sér. Þetta valdi hann ekki að gera.

Ég vildi óska þess að hann hefði gert það. Þá væri að öllum líkindum til borgaralegur, frjálslyndur hægri flokkur á Íslandi sem ég gæti kosið. Hugsanlega undir hans forystu. Ég veit að ég er ekki einn um þennan hugsanagang. Það voru hundruðir miðaldra Íslendinga sem voru i sömu sporum og ég síðustu kosningar.

En valið fór á annan veg, í staðinn fyrir að neita að taka þátt í vitleysunni sem frjálshyggjutilraunin á lífskjörum Íslandinga var að sýna sig. Velur Davíð Oddson að mótmæla hæversklega, með minnisblöð ein að vopni. Davíð vissi vel að annar Oddviti ríkisstjórnar Geirs H. Haarde, Ingibjörg Sólrún, tæki ekki mark á neinu sem hann segði. Seðlabankastjóri eða ekki. Davíð átti þavi aðeins einn möguleika á að bjarga sínu mannorði frá miðju ári 2007. Það var að segja af sér. Hefði hann gert það, væri þjóðin gríðarlega betur sett í dag.

Það er sorglegt fyrir fólk sem hefur þá lífssýn að vilja hafa borgaralega ríkissyjórn að þurfa að sjá eftir stjórnmálamanni eins og Davíð Oddsyni. Ég sá hann sem ungur maður standani á kassa, á horni Lækjargötu, Bankastrætis, og Austurstrætis. Að biðja kjósendur um fylgi til að komast í Borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta tókst og hann varð síðar farsæll borgarstjóri Reykjavíkur.  Seinna sem formaður flokksins, og Forsætisráðherra.

En svo kemur Titanic. Og þar var það spurning um heiðursmenn. Ef Davíð hefði verið skipstjóri á Titanic, Hannes Hólmsteinn 1. stýrimaður og Kjartan Gunnarsson 2. stýrimaður. Hefðu þeir ekki allir komist af? Eg er jafn viss um það, og einnig viss um að þeir hefðu klárað að sannfæra sjóréttinn um að þetta væri allt ísjakanum að kenna. Og þeir sem báru skaða væru svo lítils virði að það þyrfti ekki að taka tillit til þess.


Hannes Hólmsteinn og Trú, Von, og Kærleikur

Trú, von og kærleikur hafa gjarnan verið tengd saman um hluti eða áhrif sem við manneskjur getum ekki tengt við raunveruleikann. Hannes Hólmsteinn hefur upp á síðkastið ritað greinar um sinn þátt, sem bankaráðsmaður í Seðlabanka Íslands, og þátt Davíðs Oddsonar í töpum sama banka á viðskiftum við einkabanka landsmanna. Sömu einkabanka og þeir sjálfir ákvörðuðu eignarhald á, fyrir hönd landsmanna. Í skrifum Hannesar hólmsteins ber mikið á orðunum VON, gjarnan notað tvisvar í sömu setningu. Einnig á viðkvæðinu "AÐ VERA VITUR EFTIR Á" Ef við byrjum á að vera vitur eftir á vil ég gjarnan segja litla sögu. Þegar sonur minn var 2ja ára var hann með ofuráhuga á eldavél móður sinnar, svo mikinn að hann gat ekki haldið höndunum af eldavélinni. Auðvitað brenndi hann sig illilega á hægri hendinni. Um þetta var búið og barnið greri sára sinna. U.þ.b. mánuði seinna endurtók sagan sig, nema þá brenndi hann sig á vinstri hendinni. með undrunarsvip uppgötvaði hann að hellan var jafnheit sama hvora hendina hann lagði á hana. Ég er viss um að hefði hann haft þrjár hendur hefði sagan endurtekið sig einu sinni enn. En það varð manneskja út úr honum, hann er 1. stýrimaður á einu stærasta ,nýjasta og hraðskreiðasta farþegaskipi Noregs.

En þegar hann gerði sínar uppgötvanir á eldavél móður sinnar var hann ekki háskólaprófessor. En hann uppgötvaði svo sannarlega hvað það hefur í för með sér að vera vitur eftir á. Ergo væri þá ekki Íslensku þjóðinni jafnhollt að láta smábörn fara með svona 300 milljarða hagsmuni, á kostnað skattgreiðanda, sem gætu svo sagt, ó, ó, ég vonaði að þetta færi ekki svona.

Hvað varðar trú, von og kærleika, sem Hannes Hólmsteinn hefur nú tekið í sitt málfar, þá man ég ekki eftir að hann hafi notað þau hugtök í sínum skrifum síðustu ár. Ekki nema Hannes Hólmsteinn sé genginn í lið með Forseta Lýðveldisins og byrji að spenna greipar fyrir framan sjónvarpsmyndavélar í beinni útsendingu til þjóðarinnar. Og ákalla æðri máttarvöld í nafni vonar og trúar um skilning á afglöpum sínum og þeirra sem hann reynir nú að vernda. Það er ekki langt síðan að hann lýsti stolti yfir að hafa fengið að vera samstarfsmaður og samferðarmaður Davíðs og Kjartans Gunnarssonar, eins og frasi úr minningargrein. En hvað eiga þessir samferðamenn Hannesar Hólmsteins sameiginlegt? Jú báðir stjórnuðu banka, Hannes Hólmsteinn reyndar líka sem aðstoðarmaður annars þeirra.  Jú þessir tveir bankar skildu eftir sig 600 milljarða skuldir á herðum landsmanna, ca 300 milljarða hver.

Hverjir standa á bak við. Jú þeir sem einkavæddu bankana,  þeir voru jú í Þjóðareigu. Kjartan Gunnarson og Finnur Ingólfsson voru handvaldir til að stýra ferlinu. Báðir enduðu sem afgerandi eigendur bankanna. Fyrrverandi Seðlabankastjóri, Finnur Ingólfsson, flutti sig um set. Og Davíð Oddson tók við, reyndar með stuttri setu Jóns Sigurðssonar, sem átti að verða arftaki Halldórs Ásgrímssonar.

 En núna til að bjarga skinni átrúnaðargoða og velgjörðarmanna sinna finnur reynslulausi prófessorinn, sem virðist aldrei hafa brennt sig á eldavélarhellu, upp á því að kalla unga fræðimenn fyrir "HROKAFULLA". Þeir koma líka utanlands frá, gjarnan vestan um haf, og kunna því engin skil á okkar aðstæðum. Þaðan af síður hafa þeir tengsl sem geta fært þeim frama umfram eigin verðleika. Ergo afskrifa þá sem hrokagikki sem eru bara vitrir eftirá. En Hannes Hólmsteinn ætti að fríska upp á minni okkar landsmanna þegar hann var fræðimaður og óumdeildur bankaráðsmaður í Seðlabanka Íslenska Lýðveldisins. Hannes Hólmsteinn fór líka í Vesturveg. Þar lýsti Hannes Hólmsteinn yfir að erlendar bankastofnanir og aðrir fjármögnunaraðilar þyrftu ekki að óttast að lána Íslenskum bönkum og fjármálastofnunum fé. Sjávarútvegsauðlindin væri orðin veðsetjanleg og framseljanleg og stæði að baki sem veð. Einnig fullyrtir Hannes Hólmsteinn að Lífeyrissjóðir landsmanna stæðu einhuga á bak við hina Íslensku einkavæddu banka.

Ég veit ekki hvað þú Hannes Hólmsteinn hefur lært. En einn kafli í bókinni ber nafnið:                        "HVENÆR Á AÐ HÆTTA AÐ KASTA GÓÐUM PENINGUM Á EFTIR SLÆMUM"   Svarið er "SEM FYRST" og það verður ekki giskað á hvenær , hvorki með Trú, Von, eða Kærleika. Þeir sem bera ábyrgð eiga að vita hvenær. Og þeir sem hafa laun sín af því að kenna ungu fólki í Háskóla landsins geta ekki kennt að það dugi  "að vera vitur eftir á"

Tugir manna, virtra manna innanlands og utan höfðu varað við því sem var að gerast. Má þar meðal annars nefna Ragnar Önundarson. En hér kemur kjarni málsins. "TRÚ, og VON" er notuð sem afsökun. En þessi sama trú og von var notuð sem "hálmstrá" til að lengja í dauðadæmdri fjármálastefnu, sem þú Hannes Hólmsteinn áttir drjúgan þátt í að skapa og framfylgja. Núna reynir þú að heimfæra þetta hálmstrá "VON" upp á fornarlömbin, þ.e.a.s. þjóðina.


Áfallahjálp fyrir bankastarfsmenn!!!

Ég hef stóra samúð með bankastarfsmönnum á gólfinu.

En þeir búa yfir vitneskju sem allir þurfa að vita. Hver fyrirskipaði hvað og hvenær. Hér er ekki hægt að sækja áfallahjálp og liggja á leyndarmálum. Allir sem liggja á leyndarmálum þurfa áfallahjálp.

Ég sigli erlendis, og hvatti konu mína til að flytja æfisparnað sinn yfir á 3 innlánsreikninga um áramótin 2007/2008. Þetta gerði hún, eða nokkurn veginn. Hún sagði mér að þetta væri gert.

En það var ekki gert, vegna þess að persónulegur ráðgjafi til heillar æfi gerði sér ferð heim +i eldhús til hennar, meðan ég var úti á sjó. Klukkan seks um kvöld, eftir vinnutíma, til að sannfæra hana um að hennar sparifé væri best borgið í peningamarkaðssjóði. Jafn öruggt og bankareikningur.

Ég ásaka ekki þessa konu, en ég vil vita hver gaf henni þessi fyrirmæli.

Það þýðir ekkert að sækja sér áfallahjálp þegar gengið er með slík leyndarmál.

En auðvitað eru BIRNUR í bönkunum sem hafa haft þetta fólk undir járnhælnum, en nú er tími að linni.

Minn gamli skólafélagi frá Núpi, Friðbertsson, segðu þínu fólki að segja sannleikann, þá náum við sannleikanum og félagsmenn þínir fá réttlatan frið. Við hin getum þá sótt til saka rétta sökudólga.

Annars hef ég ákveðið að sækja til saka, einkamál, fulltrúa í einum bankanna. Bara til að fá fram hver gaf henni fyrirmæli um ráðleggingar um sparifé konunnar minnar. Kosti hvað það kosta vill. Ég á bara í vandræðum með konuna, sem er full af vorkunnsemi, og lái ég henni ekki.

 


Líknardauði eskimóa í boði ESB, kannski verður Össur ráðinn böðull?

Það er fróðlegt að hlusta á fréttirnar. Var akkúrat að sættast á að ESB væri kannski raunhæfur möguleiki. Allavega að það mætti láta á það reyna, sem eins konar þjóðarsátt, til að halda saman ríkisstjórn sem við þurfum á að halda. En það er skammt á milli stórra högga. Ríkissjónvarpið þurfti endilega að vekja mig af værum draumi. ESB ætlar að banna Inúítum að borða matinn sinn, og selja afurðir sínar.

Nú ætlar ESB að sýna tennurnar, sínar eigin tennur, til varnar sínum einkahagsmunum. Hverjir eru þolendur? Jú þeir sem standa lakast í metorðastiganum, Inúítar og Eskimóar. Kannski eiga þeir þetta skilið fyrir þeirra þátt í fjármálahruninu? Búnir að kaupa Rollsa og flatskjái umfram efni. Ekki nema þeir séu að drepa gæludýrin okkar sér til matar? En hugsum við þá nægilega vel um þessi gæludýr.

Ein lausnin á vandanum væri sjálfsagt að bjóða þessum ævafornu ættbálkum upp á Nýlendu líknardauða. T.d. ókeypis brennivín þar til yfir líkur. Við hin sem aðhyllumst ESB höfum hingað til kynnt þessa líknarvöru bræðrum okkar á Norður Heimskautsslóð.

Dettur í hug kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, þar sem Sænski böðullinn var að undirbúa refsifanga sína undir aftöku. En ESB Össur gæti leyst málið á mun líknarfyllri hátt, með ókeypis Íslensku brennivíni. Þetta gæti liðkað fyrir okkar inngöngu í himnaríkið og að sjálfsögðu gert Össur ódauðlegan.


Kvíðin skólabörn - vikulega fréttir af aukningu á kvíða og vanlíðan hjá börnunum.

Það er eins og það sé bara Ríkisútvarpið sem hafi áhuga á þessu máli. Allir keppast um að velta kreppunni fyrir sér fram og aftur. Það skiftir engu máli hvort kreppan lagast eða ekki, ef við getum ekki bjargað börnunum frá skemmdum. Það er ósvífni að láta viðgangast að það skapist slík stéttaskifting í grunnskólum landsins. Að nemendurnir skiftist í þá sem eru saddir og þá sem eru svangir. Það á að koma á fót skólamáltíðum fyrir alla STRAX. Þetta er líka stór liður í að hjálpa heimilum í vanda.

Það má ekki stórskemma fleiri árganga af skólabörnum, það bara má ekki gerast!!!

Nú er að koma í ljós, betur og betur, með hverjum deginum. Alvarlegastu áhrif hrunsins og kreppunnar. Það er áhrifin á börnin okkar og barnabörn. Skóla, heilbrigðis og félagsmálafólk finnur áhrifin koma læðandi inn. Börnin finna ójafnvægi og óhamingju foreldra sinna, sum fá bein áhrif vegna efnamissis foreldranna. Jafnvel matarskort.

Allir tala um aðgerðir fyrir heimilin, jú þau eru nauðsynleg. En aðgerðir fyrir börnin eru lífsnauðsynleg.

Það þarf að þjappa börnunum saman, upplýsa þau um ástandið. Fá þau til að taka þátt í uppbyggingunni, með samstöðu og félagsanda.

Það á að taka upp ókeypis skólamáltiðir, fyrir alla. Það á að hvetja foreldra sem ekki skerðast í efnahag vegna hrunsins, til líka að senda sín börn svöng í skólann. Það á að koma á skólabúningakerfi um allt land. Það á að hvetja börnin til að láta sig varða um hvert annað, eins og þau séu liðsmenn í sama keppnisliði. Þetta hefur ekki verið gert á Íslandi áður, en, í Laugarnesskóla var sunginn morgunsöngur. Seinna heyrði ég ástæðuna, það skapaði samstöðu og samheldni milli barnanna og dró úr einelti og mismunun.

Samhliða á að stórefla, markvisst, allt uppbyggjandi og samstöðuskapandi æskulýðsstarf. Virkja Skáta, KFUM/K, Íþróttahreyfingarnar, og öll önnur tækifæri til að skapa samheldni og liðsanda hjá ungu kynslóðinni. Meira að segja að ganga svo langt að ráða atvinnulausa til starfa við tómstundir barna og unglinga. Þau eru okkar stærstu verðmæti.


Meðferð á óhreinu ballestarvatni í XD

Ég vil nú beina máli mínu til Bjarna Benediktssonar, i föðurlegum ráðleggingartón. Allt að 27% útstrikanir, er allt of mikið til að líta framhjá.

Bjarni minn, það gerist endrum og eins að við lendum í að fá inn í ballestartanka á skipum, mengað eða skítugt ballestarvatn. Þá er það viðtekin venja og góð sjómennska að nota fyrsta hentuga, og löglega tækifæri til að dæla því út. Og samtímis að taka inn aftur hreint vatn. Þetta er gert þannig að Skipstjórinn, kallar fyrir sig Yfirvélstjórann og gefur honum fyrirmæli um verkið, stað og stund.

Ég held að það sé lítill munur á þessum verkum og þeirri hreingerningavinnu sem nú bíður þín, nema þú viljir láta flokkinn leysast algerlega upp. Kallaðu fyrir þig útstrikunarkóngana og biddu þá vinsamlegast um að yfirgefa skútuna. Ef þeir ekki fást til þess, sjáðu til þess að þeir geri það.

Við Stýrimannaskólann var kennd bók sem bar heitið "Forysta" annað hvort skrifuð, þýdd, eða endursögð, af Garðari Pálssyni fyrrverandi Skipherra og dyggum Sjálfstæðismanni. Þar stóð orðrétt.

"Sérhver yfirmaður sem vill ná árangri í starfi, verur að hafa siðferðilegt þrek til að geta útilokað óhæfa undirmenn." Þó svo tímarnir séu aðrir hefur þetta ekkert breyst.


Evrópusambandið er ekki flokkspólitískt mál!!!

Það er með ólíkindum ef ábyrgir sjórnmálaforingjar láta mál eins og aðildarviðræður vis ESB, hamla þeirri stjórnarmyndun sem þjóðin kallaði á í þessum kosningum. Það er enginn stjórnmálaflokkur án ESB sinna, né án ESB andstæðinga. Þessu má líkja við hluthafafund í hlutafélagi, allir hluthafa þurfa að kjósa um sameiningu við annað félag, en geta þó valið andstæðinga sína í stjórn eftir sem áður.

Það er engin ástæða til að láta Samfylkingunni það eftir að ganga til viðræðna vegna fylgis flokksins. Ef Ingibjörg Sólrún hefði leitt flokkin í þessum kosningum, hefði fylgi flokksins verið allt annað og lakara. Jafnvel lakara en við síðustu kosningar. Þannig að atkæðin sem komu merkt XS upp úr kössunum voru alls ekki öll merkt ESB.

Hitt er svo annað mál að Vinstri grænir eiga ekki að standa í vegi fyrir ESB ef sanngjarn meirihluti þjóðarinnar vil láta reyna á aðildarviðræður. Þennan sanngjarna meirihluta er hægt að staðfesta með óhlutdrægum aðilum, þannig að ekki þurfi að koma til umfangsmikillar þjóðaratkvæðagreiðslu.

Hvort heldur sem verður, þá eiga samt þessir tveir flokkar að hlýta niðurstöunni. Þeir geta hæglega barist með og á móti fram að þjóðaratkvæðagreiðslu, nema það komi niður á samningsniðurstöðunni.

Undirritaður er í hjarta sínu á móti aðild. Þetta er mér meira tilfinningamál, heldur en rökrétt niðurstaða. Ég hef bara ekki trú á langlífi slíkra sambanda. Held hreinlega að þróun ESB verði svipuð og þróun Eurovision. Þjóðirnar sem við viljum líkjast mest, munu hverfa í skuggann fyrir Balkan og Litlu Asíu.


Næsta síða »

Um bloggið

Jens Guðmundur Jensson

Höfundur

Jens Guðmundur Jensson
Jens Guðmundur Jensson
Sæfari

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband